GKS

Innréttingar

Innréttingar fyrir okkur öll

Við höfum áralanga reynslu í innréttingum fyrir nýbyggingar jafnt sem eldri hús. Ekki hika við að líta við í sýngarsal okkar að Síðumúla 4 eða ýta á "BÓKA TÍMA" hnappinn efst í hægra horninu.

Hjá GKS Innréttingum finnur þú fjölbreytt úrval innréttinga sem henta öllum heimilum, fyrirtækjum og stofnunum. Við bjóðum vandaðar og hagkvæmar lausnir í öll rými heimilaisins og  skrifstofurými fyrirtækja og stofnana fyrirtækjum. Hvaða stíl sem þú aðhyllist hjálpum við þér að finna réttu innréttinguna. GKS Innréttingar – fyrir okkur öll. 

 

Eldhús

Eldhúsið er hjarta heimilisins

Skoða

Baðherbergi

Baðinnréttingar sem sameina hönnun og notagildi. Við mætum öllum þörfum svo að þú finnur hjá okkur innréttingu sem hentar þínum stíl og kröfum. Finndu fullkomna baðinnréttingu – gæði, hönnun og hagkvæmni í einni lausn!

Skoða

Fataskápar

Hágæða fataskápar fyrir skipulag og stíl. Við sérsníðum einnig innréttingar fyrir fataskápa, þar á meðal hillur og geymslulausnir, sem fullkomna skápahönnunina fyrir svefnherbergi, geymslur og önnur rými. Með lausnum í mismunandi verðflokkum finnur þú fataskáp sem hentar þér. Hvort sem þú þarft skáp í svefnherbergi, geymslu eða forstofu, þá finnum við lausn sem hentar þér.

Skoða

Þvottahús

Vel skipulagt þvottahús getur gert dagleg störf mun auðveldari

Skoða

Innihurðir

Vandaðar og fallegar innihurðir frá trésmiðju GKS prýða mörg heimili, fyrirtæki, hótel og stofnanir á Íslandi. Við getum boðið flest allar tegundir innihurða, með eða án gerefta, eldvarnarhurðir, hljóðvistarhurðir og staðlaðar innihurðir. Við erum einnig í samstarfi við erlendar verksmiðjur fyrir stærri og/eða sérhæfðari verkefni t.d. fyrir hótel eða hljóðvistarhurðir.

Skoða

Sérsmíði

Við getum sérsmíðað inn í rýmið þitt. Við getum gert nánast allt sem hugurinn girnist.

Skoða

Stofa

Vel hannaðar innréttingar gera stofuna bæði hlýlega og notadrjúga.

Skoða

Vefverslun

Skrefin að nýrri innréttingu

Þegar fjárfesta á í nýrri innréttingu þarf að huga að mörgu. Við höfum listað upp almennt verkferli hjá okkur þegar stefnt er að slíkri framkvæmd.

01Taka málin

Gott er að byrja á því að rissa upp og mæla lengd og hæð veggja í þeim rýmum sem innrétta á. Þá er einnig hjálplegt að fá myndir af núverandi rými, ásamt óskum þínum.

02Bóka fund

Á fundinum leiða innanhússarkitektar og hönnuðir okkar þig í gegnum þá möguleika sem í boði eru byggt á upplýsingunum frá þér.

03Förum yfir málin

Við skoðum með þér teikningarnar og lögum að þínu draumaeldhúsi. Við gerum þér tilboð og þú tekur þinn tíma til að skoða. Þegar tilboðið er samþykkt fer pöntun af stað og afhendingartími er 6-12 vikur eða samkvæmt samkomulagi.

04Sækir eða færð sent

Þú velur hvort þú sækir innréttingarnar sjálfar eða færð sent heim að dyrum.

05Við erum til að í græja allt

Allar einingar frá Nobilia koma samsettar. Þú getur sett þær upp sjálf/ur eða fengið tilboð frá okkar fagmönnun í verkið.

Hægt er að mæta á staðinn en enn betra að bóka fund í síma 577-1600, í tölvupósti gks@gks.is eða með því að ýta á „BÓKA FUND“ hnappinn efst á síðunni.

Hraðþjónusta á einföldum innréttingum (í hvítu) tekur 3-4 vikur.

© 1993 - 2025, Gamla Kompaníið