Skilmálar & persónuverndarstefna
Skilmálar
Almennt
Með því að versla á vefsíðu GKS Innréttinga samþykkir kaupandi eftirfarandi skilmála. Skilmálar þessir gilda um öll viðskipti sem fara fram í gegnum vefsíðuna.
Ef viðskiptavinur er undir 16 ára aldri ber honum að upplýsa foreldra eða forráðamann um skilmála þessa og fá samþykki þeirra áður en vörukaup eru framkvæmd.
Verð
Öll verð eru birt með virðisaukaskatti nema annað sé sérstaklega tekið fram. Seljandi áskilur sér rétt til að breyta verðum án fyrirvara.
Greiðslur
Hægt er að greiða fyrir vörur og þjónustu með eftirfarandi hætti:
- Pei
- Greiðslukortum í gegnum örugga greiðslusíðu
- Millifærslu
Pöntun telst ekki staðfest fyrr en greiðsla hefur borist að fullu, nema annað sé samið sérstaklega.
Mikilvægt er að senda staðfestingu á greiðslu (ef um millifærslu er að ræða) á gks@gks.is
Afhending
Afhendingartími fer eftir vöru og er mismunandi. Upplýsingar um áætlaðan afhendingartíma eru veittar við pöntun eða í framhaldi af henni. Seljandi ber ekki ábyrgð á töfum sem rekja má til aðstæðna utan hans valds. Afhending fer fram á Funahöfða 19 og/eða í Síðumúla 4. GKS Innréttingar lætur þig vita hvar þú getur nálgast vöruna/vörurnar þínar eftir að gengið hefur verið frá pöntunum.
Skil og endurgreiðslur
Engin skil eða endurgreiðslur eru í boði á sérpöntuðum vörum þ.e.a.s innréttingum, heimilistækjum sem eru sérpöntuð o.s.frv. nema um gallaða vöru sé að ræða eða annað sé sérstaklega umsamið.
Undantekning frá reglunni eru vörur sem við eigum á lager eins og til dæmis: hnifaparabakkar, antislip mottur o.s.frv.
Ef þú ert óviss um skil og endurgreiðslu hafðu samband við GKS í síma: 577-1600
Ábyrgð og gallar
Ef vara reynist gölluð skal kaupandi taka mynd af galla vörunnar og senda staðfestingu á gks@gks.is, hafa samband við seljanda eins fljótt og auðið er eða koma með vöruna uppí Síðumúla 4.
Gallaðar vörur eru meðhöndlaðar í samræmi við gildandi lög.
Persónuupplýsingar
Allar persónuupplýsingar eru meðhöndlaðar sem trúnaðarmál og eingöngu notaðar í tengslum við afgreiðslu pantana og þjónustu við viðskiptavini GKS Innréttinga.
Lög og varnarþing
Skilmálar þessir eru í samræmi við íslensk lög.