Trésmiðjan okkar
Trésmiðja GKS – Sérsmíði án takmarkana
Þín hugmynd. Okkar handverk.
Hjá Trésmiðju GKS breytum við hugmyndum í veruleika. Við sérhæfum okkur í sérsmíðuðum innréttingum og lausnum þar sem vönduð hönnun, faglegt handverk og notagildi fara saman. Hvort sem um er að ræða einstaka innréttingu fyrir heimilið, sérhæfða lausn fyrir atvinnuhúsnæði eða umfangsmikið verkefni fyrir byggingarverktaka, þá leggjum við áherslu á að útfærslan mæti þörfum hvers viðskiptavinar.
Engin tvö rými eru eins – og þess vegna þurfa lausnirnar ekki að vera það heldur.
Við sérsmíðum eftir þínum þörfum
Möguleikarnir hjá Trésmiðju GKS eru nánast ótakmarkaðir. Við tökum að okkur fjölbreytt verkefni, stór sem smá, meðal annars:
- Eldhúsinnréttingar – sérhannaðar lausnir sem sameina útlit, gæði og notagildi.
Við getum bæði sérsmíðað alla innréttinguna þína eftir málum, óskum og teikningum eða hreinlega smíðað hluta af frontum á t.d Nobilia innréttingu.
Viðskiptavinir okkar njóta alltaf góðs af því að trésmiðjan okkar sé ein stærsta á landinu. - Fataskápa og fataherbergi – hámarksnýting rýmis með lausnum eftir málum.
Við getum gert fataskápana algjörlega eftir þínu höfði – klædda að innan, með rennihurðum, með fræstri lýsingu, klæddum skúffum, opnir skápar eða hreinlega svo að þeir passi upp á mm í rýmið þitt hvort sem það er á dýpt, hæð eða breidd. - Baðherbergisinnréttingar – sérsmíðaðar innréttingar sem henta rýminu og þínum óskum.
Það eiga allir skilið baðherbergi sem þeim líður vel með og við aðstoðum þig við að færa hugmynd í framkvæmd.
Við bjóðum upp á allsskonar lausnir hvað það varðar – spónlagt, lakkað eða klætt með stein? ekkert mál! - Innihurðir og inniglugga – sérlausnir í fjölbreyttum útfærslum.
Okkar sérstaða á markaðinum eru sérsmíðaðar innihurðir og innigluggar og ekki að ástæðulausu.
Hver ein og einasta innihurð er framleidd eftir málum með þitt draumaútlit í huga. - Munaskápa og geymslulausnir – fyrir skóla, íþróttamannvirki, vinnustaði og önnur atvinnurými.
Munaskáparnir okkar prýða mörg leikskóla, grunnskóla og íþróttarými á landinu.
Þeir standast kröfur kaupanda og notanda. - WC-skilrúm – hagnýtar og vandaðar lausnir fyrir almennings- og atvinnuhúsnæði.
- Rimlaveggi og viðarklæðningar – fallegar lausnir sem skapa hlýlegt og fágað yfirbragð.
Vantar skilrúm á milli anddyris og aðalrýmis? Það getur verið einstaklega fallegt að brjóta upp á rýmið með fallegum rimlum.
Þá framleiðum við alltaf eftir málum og veljum efni sem passar fyrir þitt heimili. - Aðrar sérsmíðaðar lausnir – hillukerfi, skrifborð, móttökuinnréttingar, fljótandi hillur, skenkir og margt fleira.
Ef þú getur látið þig dreyma þá getum við framleitt það.
Frá hugmynd að fullbúinni lausn
Við vitum að góð sérsmíði snýst um meira en nákvæm mál og fallegt útlit. Hún snýst um að skilja þarfir viðskiptavinarins og finna réttu lausnina fyrir hvert verkefni.
Hjá GKS leggjum við áherslu á persónulega þjónustu, vandaða efnisnotkun og fagleg vinnubrögð. Við vinnum með einstaklingum, arkitektum, innanhússhönnuðum og byggingarverktökum að fjölbreyttum verkefnum þar sem gæði og útfærsla skipta máli.
Ertu með hugmynd? Við finnum lausnina.
Hvort sem þú ert með fullmótaðar teikningar eða hugmynd sem þarf að þróa áfram, þá viljum við heyra frá þér.
Hafðu samband við GKS og fáðu ráðgjöf eða tilboð í þitt næsta sérsmíðaverkefni.
Hægt er að bóka tíma með hönnuði á gks.is, í noona appinu eða einfaldlega hafa samband við okkur í síma eða senda okkur póst.
Símanúmer: 577-1600
Netfang: gks@gks.is