Hannaðu fullkomna stofu með innréttingum sem endurspegla þinn stíl – við bjóðum hágæða hönnun og lausnir fyrir alla!
Við erum með hillulausnir, opnar hillur, bókahillur og veggskápa sem nýta plássið á smartan og stílhreinan hátt. Með sérsniðnum innréttingum tryggjum við að stofan þín verði bæði falleg, notaleg og í stíl við aðrar innréttingar heimilisins.
Þegar fjárfesta á í nýrri innréttingu þarf að huga að mörgu. Við höfum listað upp almennt verkferli hjá okkur þegar stefnt er að slíkri framkvæmd.
Gott er að byrja á því að rissa upp og mæla lengd og hæð veggja í þeim rýmum sem innrétta á. Þá er einnig hjálplegt að fá myndir af núverandi rými, ásamt óskum þínum.
Á fundinum leiða innanhússarkitektar og hönnuðir okkar þig í gegnum þá möguleika sem í boði eru byggt á upplýsingunum frá þér.
Við skoðum með þér teikningarnar og lögum að þínu draumaeldhúsi. Við gerum þér tilboð og þú tekur þinn tíma til að skoða. Þegar tilboðið er samþykkt fer pöntun af stað og afhendingartími er 6-12 vikur eða samkvæmt samkomulagi.
Þú velur hvort þú sækir innréttingarnar sjálfar eða færð sent heim að dyrum.
Allar einingar frá Nobilia koma samsettar. Þú getur sett þær upp sjálf/ur eða fengið tilboð frá okkar fagmönnun í verkið.
Hægt er að mæta á staðinn en enn betra að bóka fund í síma 577-1600, í tölvupósti gks@gks.is eða með því að ýta á „BÓKA FUND“ hnappinn efst á síðunni.
Hraðþjónusta á einföldum innréttingum (í hvítu) tekur 3-4 vikur.