Upplýsingar
MuteBox Work Creative er hljóðeinangraður vinnuklefi sem sameinar nútímalega hönnun, góða hljóðvist og þægindi fyrir einbeitta vinnu. Klefinn er sérhannaður fyrir opin vinnurými þar sem ró, athygli og sköpun eru í fyrirrúmi.
Klefinn dregur úr utanaðkomandi hávaða og er búinn rafdrifnu, hæðarstillanlegu skrifborði sem gerir vinnuna sveigjanlega og þægilega. Hann er glæsilega hannaður með innbyggðri LED lýsingu og sjálfvirkri loftræstingu með hreyfiskynjara, sem tryggir ferskt og bjart vinnuumhverfi allan daginn. Á bakhlið klefans er glær glertafla sem hentar vel fyrir hugmyndavinnu og skissur, og hljóðdempandi viðarpanelar úr endurunnu efni skapa hlýlegt og vistvænt andrúmsloft.
Stærð klefans er 204,6 cm á breidd, 223 cm á hæð og 130,5 cm á dýpt.
ATH! Mutebox er sérpöntun.
Afhendingartími eru 4-6 vikur. Starfsmenn GKS Innréttinga hafa samband eftir að pöntun hefur verið staðfest og sendir tilboð í uppsetningu í kjölfarið.