GKS

Um okkur

GKS Innréttingar

Verkefni okkar eru fyrst og fremst þjónusta við innréttingamarkaðinn, innihurðaframleiðsla, framleiðsla og sala skrifstofuhúsgagna og hverskyns sérsmíði innanhúss hvort heldur sem er fyrir heimili, fyrirtæki eða stofnanir.

GKS Innréttingar byggir á gömlum og traustum grunni. Fyrirtækið í núverandi mynd er tilkomið með samruna nokkurra fyrirtækja:

Í dag vinna hjá fyrirtækinu starfsmenn sem áður höfðu starfað hjá öllum þessum fyrirtækjum. Hér er því mikil reynsla samankomin hjá góðu starfsfólki. Starfsmannafjöldi er að jafnaði um 25-30 manns.

GKS Innréttingar  er framleiðslufyrirtæki af fullkomnustu gerð sem býr yfir tölvustýrðum fjölvinnsluvélum, UV lakkvélum, tölvustýrðum sögum og borvélum, allt til að geta boðið bestu nákvæmni í framleiðslu og samkeppnishæf verð. Auk þessa hefur fyrirtækið umboð fyrir hágæða innréttingum frá þýska framleiðandanum Nobilia, hljóðvistarkerfi og glerveggjakerfi svo dæmi séu tekin.

Verkefni okkar eru fyrst og fremst þjónusta við innréttingamarkaðinn, innihurðaframleiðsla, framleiðsla og sala skrifstofuhúsgagna og hverskyns sérsmíði innanhúss hvort heldur sem er fyrir heimili, fyrirtæki eða stofnanir.

Saga fyrirtækis

GKS Innréttingar byggir á traustum grunni

Skoða

Skilmálar & persónuverndarstefna

Skoða

Starfsfólk

Skoða

Hafa samband

Skoða

Umhverfismál

Skoða

Vefverslun

Skrefin að nýrri innréttingu

Þegar fjárfesta á í nýrri innréttingu þarf að huga að mörgu. Við höfum listað upp almennt verkferli hjá okkur þegar stefnt er að slíkri framkvæmd.

01Taka málin

Gott er að byrja á því að rissa upp og mæla lengd og hæð veggja í þeim rýmum sem innrétta á. Þá er einnig hjálplegt að fá myndir af núverandi rými, ásamt óskum þínum.

02Bóka fund

Á fundinum leiða innanhússarkitektar og hönnuðir okkar þig í gegnum þá möguleika sem í boði eru byggt á upplýsingunum frá þér.

03Förum yfir málin

Við skoðum með þér teikningarnar og lögum að þínu draumaeldhúsi. Við gerum þér tilboð og þú tekur þinn tíma til að skoða. Þegar tilboðið er samþykkt fer pöntun af stað og afhendingartími er 6-12 vikur eða samkvæmt samkomulagi.

04Sækir eða færð sent

Þú velur hvort þú sækir innréttingarnar sjálfar eða færð sent heim að dyrum.

05Við erum til að í græja allt

Allar einingar frá Nobilia koma samsettar. Þú getur sett þær upp sjálf/ur eða fengið tilboð frá okkar fagmönnun í verkið.

Hægt er að mæta á staðinn en enn betra að bóka fund í síma 577-1600, í tölvupósti gks@gks.is eða með því að ýta á „BÓKA FUND“ hnappinn efst á síðunni.

Hraðþjónusta á einföldum innréttingum (í hvítu) tekur 3-4 vikur.

© 1993 - 2025, Gamla Kompaníið