EININGAR
Einingarnar, skúffur og hillur eru í litnum Lava Grey.
Skáparnir eru 240cm á hæð, 56.5cm á dýpt (án fronta) og koma í ýmsum breiddum.
Heildardýpt með frontum er 58.4cm
Ef lofthæðin er hærri er en 280cm er hægt að bæta við efri skápum ofan á 240cm háu einingarnar.
Efri skáparnir eru 36cm á hæð og í sömu dýpt.
INNVOLVS
Þú velur hvaða innvols hentar þér og fyllir út pöntunarskjalið á næstu síðum.
ATH! Allar hillur og fataslár sem sjást á teikningum fylgja með skápnum og því mikilvægt að merkja eingöngu við það sem þú vilt kaupa aukalega eins og til dæmis skúffur. Allir skápar eru með síborun svo hægt sé að stilla hillur, slár og skúffur eftir þörfum hvers og eins.
Þú velur hvaða lit þú vilt á hurðir, aðfellur, úthliðar, sökkla og loftalok en hægt sé að velja um sex liti. 5 af þeim litum eru lagerlitir.
ÁÐUR EN PANTAÐ ER:
Í listanum okkar finnur þú alla þá skápa sem við bjóðum upp á í þessari línu.
Skáparnir heita eftir breiddum og týpum (t.d 40A).
Skáparnir skiptast í tvo flokka “A” og “B”.
A skáparnir eru ekki með skilrúmi fyrir miðju en B skáparnir eru með skilrúmi.
Þegar þú ert að velja innvols í skápinn er mikilvægt að haka í rétta aukahluti þ.e.a.s ef þú ert með 100B skáp þá þarftu að velja fataslá, hillur og skúffur fyrir 100B skáp en ekki 100A.
AFHENDING OG UPPSETNING:
Skáparnir eru afhentir flatpakkaðir og ósamsettir. Skrúfa þarf skápana saman á staðnum og festa þá við vegg. Skúffur eru afhentar samsettar.
Aðfellur, loftalok og sökkla þarf að saga til á staðnum við uppsetningu.
Afhending GKS hefur samband um leið og búið er að taka saman pöntunina þína og búið er að greiða reikninginn.
Ef þér/ykkur vantar aðila í uppsetningu geta starfsmenn GKS bent ykkur á fagaðila.
Annars er alltaf hægt að kíkja við í sýningarsalinn okkar í Síðumúla 4 eða bóka tíma með hönnuði 🙂
Þegar fjárfesta á í nýrri innréttingu þarf að huga að mörgu. Við höfum listað upp almennt verkferli hjá okkur þegar stefnt er að slíkri framkvæmd.
Gott er að byrja á því að rissa upp og mæla lengd og hæð veggja í þeim rýmum sem innrétta á. Þá er einnig hjálplegt að fá myndir af núverandi rými, ásamt óskum þínum.
Á fundinum leiða innanhússarkitektar og hönnuðir okkar þig í gegnum þá möguleika sem í boði eru byggt á upplýsingunum frá þér.
Við skoðum með þér teikningarnar og lögum að þínu draumaeldhúsi. Við gerum þér tilboð og þú tekur þinn tíma til að skoða. Þegar tilboðið er samþykkt fer pöntun af stað og afhendingartími er 6-12 vikur eða samkvæmt samkomulagi.
Þú velur hvort þú sækir innréttingarnar sjálfar eða færð sent heim að dyrum.
Allar einingar frá Nobilia koma samsettar. Þú getur sett þær upp sjálf/ur eða fengið tilboð frá okkar fagmönnun í verkið.
Hægt er að mæta á staðinn en enn betra að bóka fund í síma 577-1600, í tölvupósti gks@gks.is eða með því að ýta á “BÓKA FUND” hnappinn efst á síðunni.