Starfsmenn GKS innréttinga hafa mikla reynslu og leggja sig fram við að veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu og sveigjanleika í viðskiptum. Við bjóðum upp á heildarþjónustu sem felur í sér hönnunar- og teikniþjónustu. Í sýningarsal okkar taka á móti þér innanhússarkitektar og hönnuðir sem hjálpa þér við val á innréttingu og teikna svo upp fyrir þig þína drauma innréttingu. Starfsmenn GKS Innréttinga bjóða viðskiptavinum sínum sérsniðnar og sérsmíðaðar lausnir sem mæta öllum þörfum og kröfum. Við erum með vandaðar innréttingar, hágæða innihurðir, glerveggi, hljóðeinangrun, eldhústæki, munaskápa og WC skilrúm.